Wednesday, November 22, 2006
Posted at 02:24 pm by pk1675
Permalink
Já þetta er hægt og þið verðið að halda áfram.
Annars er svo sem ekkert að frétta. Krökkunum gekk þrusu vel í Laugardalshöllinni en þið getið lesið það á þeirra síðu www.barnaland.is/barn/18983
Svo voru stóru börnin mín að búa sér til sínar blogg síður. Ólafar síða er www.blog.central.is/bylur og Þorsteins er www.blog.central.is/flekkur Þeim finnst voða gaman þegar einhver kvittar hjá þeim.
Annars eins og ég sagði þá hef ég ekki mikið að segja. Er að manna mig upp í að fara að baka og er búin að þrifa það sem á að þrífa fyrir jól. Svo er ég að fara í það að búa til jólakortin. Vantar bara að hafa börnin mín heima í dagsbirtu öll saman svo ég geti tekið af þeim mynd úti í garði,....
En nóg í bili og ekki klikka á að kvitta.
Sjáumst
Posted at 01:56 pm by pk1675
Permalink
Friday, November 17, 2006
Já þetta gátuð þið.
Annars er svo sem ekki mikið að frétta. Allt við það sama.
Er á leið í Reykjavíkina á morgun. Krakkarnir eru að fara að keppa á móti í Laugardalshöllinni á morgun. Við þurfum að leggja af stað kl 6:30 í fyrramálið því keppnin byrjar kl 9 hjá þeim báðum.
En læt ykkur vita hvernig gekk þegar þið eruð búin að kvitta 10 sinnum.
Sjáumst
Posted at 02:09 pm by pk1675
Permalink
Tuesday, November 14, 2006
Er algjörlega andlaus yfir því að blogga enda hef ég akkúrat ekki neitt gáfulegt að segja. Ég ætti kanski að taka hana Hönnu Rósu frænku mína mét til fyrirmyndar og blogga þegar búið er að kommenta 10 sinnum við síðustu færslu. En þá myndi ég líklega aldrei blogga því það eru ekki svo margiri sem kvitta. En best ég geri tilarun. Þegar komin verða 10 comment við þessa færslu skal ég blogga aftur.....
Annars er allt við það sama.
Fer í vinnu í morgun eftri smá pásu. Mikið að gera þessa viku. Bæði hjá mér og börnunum. Þemadagar í skólanum og mikil vinna þessa viku hjá mér. Bara búin að fara á 2 fundi í dag og engann á morgun en 1 á fimmtudag. Svona er það.
Er að pæla í að reyna að fara komast til Reykjavíkur til að kaupa jólaföt á eldri börnin. Sigríður er búin, fékk sín á Akranesi um daginn og fékk gullskó og voða fínann kjól. Já hún fer alla vega ekki í jólaköttinn.
En þar til næst.
Sjáumst
Posted at 04:10 pm by pk1675
Permalink
Tuesday, October 31, 2006
Hef ekkert að segja. Fór á Akranes um síðustu helgi ásamt því að fara á LH þing í Borganesi. Hitti mömmu og pabba, varð fyrir hálfgerðu áfalli og hef verið ansi andlaus síðan. Erfitt að horfa upp á sína nánustu þjást og líða illa bæði andlega og líkamlega. Aðallega líkamlega. Vilidi að eitthvað væri hægt að gera til að laga þetta.
Sjáumst
Posted at 01:00 pm by pk1675
Permalink
Tuesday, October 24, 2006
Gerði samt heiðarlega tilraun til að blogga heiman frá mér í dag en auðvitað klikkaði eitthvað og færslann hvarf.... Óþolandi algjörlega.
Annars er lítið að frétta er að fara á LH þing á föstudaginn alla leið í Borganes, þann .....stað. Ekki meira um það. Trúið mér þetta er ekkert persónulegt en þeir sem til þekkja vita að það var og hefur aldrei verið hlýtt á milli Akurnesinga og Borgnesinga.....
Fór í foreldra viðtal í dag í skólanum og fékk að vita að börnin mín væru framúrskarandi frábær, gáfuð og miklir snillingar. Ekki það að ég hafi ekki vitað það áður. Ágætt að aðrir sjái það líka.
Vissuð þið að samkvæmt könnun hjá einhverjum hvalavinum hefur innan við 1% Íslendinga keypt hvalkjöt síðustu mánuði ??? Finnst ykkur það ekki alveg ótrúlegt.. Þar sem það er nú bara ný byrjað að veiða aftur hval og hann hefur ekki einu sinni verið settur í innanlandmarkað.. Mér finnst það alla vega.
Sjáumst
Posted at 05:52 pm by pk1675
Permalink
Monday, October 16, 2006
Er sem sagt á næturvakt núna. Var svo ljón heppin að Einar er heima svo ég þurfti ekki að bögga tengdó. Við Einar vorum nefnilega að vesenast í fé síðan korter fyrir eldsnemma í morgun. Klukkan var alla vega ekki orðin 8 þegar ég og Sigríður vorum komnar upp í traktor með Einari að smala saman lömbum austur í nesi. Sem voru svo mæld öll í bak og fyrir af ráðanaut nokkrum... Svo þegar þessu öllu var lokið þá var ég svo upprifin að ég gat ekki með nokkru móti sofnað og fór því ósofin á næturvakt. Gæti þar af leiðandi vel hugsað mér að fara að sofa núna. En það þýðir ekki að tala um það. Það verður bara enn betra að fara að sofa í fyrramálið þegar enginn er heima. Krakkarnir í skólanum, Sigríður á leikskólanum og Einar farinn á Selfoss.
Annars hef ég ekki mikið að segja. Hitti engann og heyri ekki í neinum. Ekki einu sinni náfrænku minni sem býr í Víkinni. Greinilega nóg að gera á þeim bænum.... :)
Er mikið að pæla í að vera búin að gera alla jólahreingerningu fyrir 1. nóv. Enda er það líklega ágætt þar sem ég sé ekki fram á að það verði slátrað fyrr en eftir 1. nóv. Þannig að hver segir að ekki megi gera þetta í öfugri röð. Líka búin að ákveða að baka ekkert fyrir þessi jól enda er ég enn að henda smákökum frá því um síðstu jól...
Jæja best að hætta enda farin að bulla tóma steypu
Sjáumst
Posted at 05:35 pm by pk1675
Permalink
Thursday, October 12, 2006
Alltaf nóg að gera.
Er hætt að nenna að blogga þegar ég er heima því tölvu druslan slekkur alltaf á sér í miðjum klíðum. Ég ætti nú kanski að fara að laga þetta. En það er annað hvort að hafa þetta eða nota bara símalínuna til að hringja inn á netið því ekki fæ ég ADSL, EMAX eða HIVE eða hvað þetta allt saman heitir. nei ég bý út í sveit of langt frá símstöð og guð veit hvað. Það er alveg ótrúlegt hvað fólk á landsbyggðinni virðist vera mikill baggi á þjóðinni. Eruð þið landsbyggðarfólk ekki með móral yfir þessu??? Við getum ekki fengið almennilegt grænmeti eða ávexti, við megum ekki fá hinar ýmsu nauðsynjavörur því það klárast alltaf í búðinni og þess vegna þýðir bara ekkert að vera að panta þetta.. Við fáum ekki moggann nema annan hvern dag og þess vegna erum við alltaf að lesa gamlar fréttir. Þannig nú skora ég á ykkur sem eruð áskrifandi af mogganum að hætta bara og lesann bara á netinu. Miklu betra held ég.
Hvernig er með allar þessa tækni og nýjungar sem hellist yfir þjóðina, afhverju má ekki nýta þetta úti á landi eins og í Reykjavík....
Æji nennig að tuða meira.
Sjáumst
Posted at 07:25 am by pk1675
Permalink
Saturday, October 07, 2006
Nei hvorki ég né talvan erum dauðar. Hins vegar er ég búin að gera nokkrar tilraunir til að blogga en í hvert sinn sem ýti á save þá slekkur tölvan á sér og þar sem þolinmæði mín er frekar af skornum skammti þá nenni ég ekki að byrja upp á nýtt. Þannig að nú er ég að svindla í vinnunni og ákvað að blogga smá fyrir ykkur digga lesendur mína.
Hef svo sem ekkert mikið að segja, fór til Reykjavíkur í gær í smá stúss. Hefði viljað bruna á Akranes og kíkja á pabba en þar sem ég átti að mæta í vinnu í morgun þá gerði ég það ekki. En annars er það að frétta af honum pabba að hann er mjög slappur núna og liggur bara fyrir. :( Ekki gott. Er búin að vera á leiðinni til hans í nokkrar helgar en það er svona þegar maður vinnur aðra hvora helgi.
Jæja en ekki meira í bili. Vinnan kallar.
Sjáumst
Posted at 04:04 am by pk1675
Permalink
Tuesday, September 19, 2006
Já ég er búin að gera tvær heiðarlegar tilraunir til að blogga hér inni en ekki gengið sem skildi. Talvan mín á það nefnilega til að slökkva á sér algjörlega óumbeðin. Hef lúmskan grun um að það sé í einhverju sambandi við þessa "há hraða" tengingu mína. Því gamla talvan mín gerði þetta líka eftir að ég fékk mér ISDN+. Mæli sem sagt ekki með því að fólk fái sér svoleiðis. Enda allir í kringum mig komnir með alvöru tengingar og þurfa ekki að bíða í korter eftir þvi að síður opnist.
Annars er letin að hrjá mig enn þá en er svona heldur á undanhaldi. Alla vega er klukkan ekki nema tæplega 10 að morgni og ég er vakandi og búin að vera það síðan kl 7. Hef svo sem ekki gert mikið nema setja í uppþvottavél en er þó vakandi.
Fór í leikfimi í gær, OHH það er svo notalegt þegar það er búið. Svo eftir leikfimina fór ég á kóræfingu hjá Kvennakórnum hér í Mýrdalnum. Það var bara ágætt. En dáldið erfitt fyrir þá sem ekki kunna að lesa nótur og kunna ekki lögin. En ég held að þetta hafi alveg verið í lagi. Þarf kanski bara að fara byðja hana Ólöfu mína að kenna mér nóturnar. :)
En nú ætla ég að hætta áður en talvan slekkur á sér.
Sjáumst
Posted at 02:29 am by pk1675
Permalink